08.05.2012 22:27
Vinna
07.05.2012 20:51
Loksins loksins...
03.05.2012 23:47
Íslandsmót um helgina.
28.04.2012 10:40
Nýjar myndir
31.03.2012 12:02
Skíðaskotfimi á Skírdag!
25.03.2012 23:21
Vetur enn....
01.03.2012 23:00
Mótaskrá sumarsins
þetta er mótaskrá sumarsins. Eintóm gleði.
Mótaskrá Skotíþróttafélags Ísafjarðarbæjar 2012
Skráning á staðnum í öll mótin.
Keppt er í 2 greinum og byrjað stundvíslega kl. 20.00.
Hefðbundin skeet skotfimi, 2x25 dúfur
Pallaskotfimi 2x10 dúfur á tíma.
Fimmtudaginn 21. júni
Keppni byrjar stundvíslega kl. 20.00
50m Þríþraut 22cal . 3x20 skot, skotstaða : standandi ,liggjandi og á hné.
Fimmtudaginn 28. Júní
Keppni byrjar stundvíslega kl. 20.00
Veiðirifflakeppni 3x5 skot.
Skotið verður á færum sem verða dregin út fyrir keppnina. Færi geta verið frá 50-500 metrar í 25m stökkum.
1 skot á skífu.
Fimmtudaginn 05. júli.
Keppt er í 2 greinum og byrjað stundvíslega kl. 20.00.
Hefðbundin skeet skotfimi, 2x25 dúfur
Pallaskotfimi 2x10 dúfur á tíma.
Fimmtudaginn 19. júlí.
Keppt er í 2 greinum og byrjað stundvíslega kl. 20.00.
500 metrar C.F. = 2x5 skot af borði, frjáls aðferð.
Skammbyssa, öll caliber leyfileg. 2x10 skot á 25 metrum
Fimmtudaginn 09. ágúst.
Keppt er í 2 greinum og byrjað stundvíslega kl. 20.00.
Hefðbundin skeet skotfimi, 2x25 dúfur
Pallaskotfimi 2x10 dúfur á tíma.
Fimmtudaginn 16. Ágúst.
Keppt er í 2 greinum og byrjað stundvíslega kl. 20.00.
Þríþraut C.F. 3x5 skot, skotstaða : standandi á 50m, á hné á 100m og liggjandi á 200m
Skammbyssa, öll caliber leyfileg 2x10 skot ,skotið á 25metra færi
Stig fyrir keppnirnar eru svona:
10 stig fyrir 1sæti , 8stig fyrir 2 sæti, 6 stig fyrir 3 sæti og svo fr.
Stig gilda aðeins fyrir félagsmenn sem greitt hafa félagsgjöldin fyrir fyrstu keppni!!
12.02.2012 21:00
Aðalfundur 2012.
Aðalfundur Skotíþróttafélagsins verður haldinn þann 24.02.2012 kl 20.00 í kaffistofu 3X technology við Sindragötu. Venjuleg aðalfundarstörf.
Að loknum aðalfundi fer fram verðlaunaafhending fyrir keppnirnar 2011.
Vonumst til að sjá sem flesta.
03.10.2011 21:43
Síðustu keppnir ársins!
Allir velkomnir.
21.09.2011 09:48
Æfing i kvöld
Líklega verður þetta síðasta miðvikudagsæfing ársins.
það er möguleiki á að opna fyrir fólk um helgar ef veður leyfir, hafið samband við mig ef áhugi er á því. Síminn er 8614694
13.09.2011 22:20
Æfing kl 1900
29.08.2011 21:39
Dúfnaveislan!
Síðasta Dúfnaveislu æfingin verður á miðvikudagskvöldið kemur!!
Smá breyting á skilafresti á skorkortunum. Þeim ber að skila til mín í síðasta lagi á fimmtudagskvöldið, því stefnt er að því að draga út vinningshafa strax eftir helgina.
ALLIR Á VÖLLINN
23.08.2011 22:35
Æfing
Nú þarf að láta blý spýtast úr hlaupum, því að nú eru einungis 2 æfingar til loka Dúfnaveislunnar. Æfingarnar verða miðvikudagskvöldin 24. og síðan 31. ágúst. Svæðið opnar kl. 1900.
þeir sem ætla að skila inn skorkortinu sínu þurfa að vera búnir að koma því til mín í síðasta lagi miðvikudaginn 7. sept. Þið getið skilað uppfrá eftir æfingu, eða þá komið þeim til mín á Urðarveg 27 á Ísafirði.
