29.07.2010 19:56

Lokaúrslit í haglabyssu.

Sex keppendur mættu til leiks í gærkvöld.
Skotnir voru tveir hringir eða 50 dúfur.

Í fyrsta sæti varð Gummi Valda með 33 dúfur.
Í öðru sæti varð Jónas Lyngmó með 30 dúfur, sem er frábær árangur í ljósi þess að hann hefur ekki æft skeet í 2 ár!
Í þriðja sæti varð Ívar Vals með 23 dúfur.
Í fjórða sæti varð Valur Richter með 21 dúfu.
Í fimmta sæti varð Leifur Bremnes með 15 dúfur.
Í sjötta sæti varð Rabbi Páls með 8 dúfur.

Þar með réðust úrslit sumarsins í haglabyssugreinum.

Í fyrsta sæti með 40 stig, Gummi Valda.
Í öðru sæti með 38 stig,   Ívar Valsson.
Í þriðja sæti með 36 stig, Valur Richter.
Í fjórða til fimmta sæti með 8 stig, Jónas Lyngmó og Leifur Bremnes.
Í sjötta sæti með 6 stig, Bjössi Bergs.
Í sjöunda sæti með 4 stig, Guðni.
Í áttunda með 2 stig, Rabbi Páls.


Æfingar verða áfram á miðvikudögum í ágúst, sjáumst hress......emoticon
Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 33
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 25210
Samtals gestir: 10411
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 17:08:37